<!-- --><!-- --><style type="text/css">@import url(http://www.blogger.com/static/v1/v-css/navbar/697174003-classic.css); div.b-mobile {display:none;} </style> </head><body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=11312049&amp;blogName=It+is+what+it+is...&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLACK&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2Fsearch&amp;blogLocale=en_US&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2F" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>













Í prófíl er skófíl sem aldrei fyrr. Holla!
En hann heitir Jóel.


Picture:
threadless
Coder:
baby.pooh
Coder Blog:
here

Wednesday, August 23, 2006


Já kjallinn átti afmæli í dag. Flestallir sendu sms-in sín samviskusamlega og það gerði daginn töluvert skemmtilegri að vera alltaf að fá sms hamingjuóskir frá einhverjum. Hápunktur dagsins var tvímænalaust að fá gjöf í vinnunni frá Snædísi og Rebekku. Hvílík snilld! Annars var kakan frá mömmu auðvitað snilld og gjöfin sem allir splæstu saman í verður örugglega snilld líka. Anyway, ég ætla að skella nokkrum vel völdum quotes um málið með. Enjoy...

With age comes the inner, the higher life. Who would be forever young, to dwell always in externals?
Elizabeth Cady Stanton (1815 - 1902), O Magazine, October 2003

The longer I live the more beautiful life becomes.
Frank Lloyd Wright (1869 - 1959)

Somewhere on this globe, every ten seconds, there is a woman giving birth to a child. She must be found and stopped.
Sam Levenson (1911 - 1980)


posted at 3:25 PM
Sunday, August 20, 2006
Ég skellti mér ásamt fríðu föruneyti á völlinn og fylgdist með leik Víkings og Valsmanna og ég fæ bara ekki orða bundist. Þjálfari Víkinga sýndi enn og aftur að hann er bara ekki starfi sínu vaxinn! Í byrjunarliði voru ævintýralega lélegir leikmenn sem hafa ekki einu sinni í sumar sýnt neitt sem gefur ástæðu til að hleypa þeim út í fótboltaleik. Ég er ekki það fúll að ég ætli að nafngreina þessa menn en þetta fer samt í mínar fínustu. Síðan tekur það göltinn sjötíu og sjö mínútur að sjá að breytinga er þörf. Sjötíu og sjö mínútur!! Þá setur hann Daníel inná í senter fyrir Dabba og breytir samt engu skipulagi og gaurinn kom kannski tvisvar við boltann á þessum tíu+ mínútum sem hann fékk. Motherf...


posted at 3:37 PM
Sunday, August 13, 2006


Nú er það heilsuátak! Frá og með mánudeginum 14. ágúst hefst tuttugu og eins dags átak þar sem ég mun: ekki nota neinskonar nikótín, ekki borða neitt sykur drull eða óhollan skyndibita, ég mun æfa af krafti og ég ætla undir sæng 22:30 á hverju kvöldi og mun vakna 07:00 á hverjum morgni. Ég hef heyrt því fleygt að það taki 21 dag að venja sig á slíkt og það er einhvern veginn minni pressa en að ætla að gera þetta restina af ævinni. Allt að gerast! Good times...


posted at 4:39 PM

Já rauði herinn lagði að velli bláklædda london-búa sannfærandi í cardiff áðan og uppskera skjöldinn góða. Nú verður bara dollan tekin! Deildin er síðasta vígið í augnablikinu og hún gæti alveg eins unnist á þessari leiktíð. Sjáum til...


posted at 4:33 PM
Wednesday, August 09, 2006
Já kjallinn skellti sér á kotmót '06 á dögunum og gefur því apparati toppeinkunn. Tveir af þremum bræðrunum voru á staðnum ásamt miss thang að sjálfsögðu. Húmorinn sveif yfir vötnum og grillið var í aðalhlutverki öllum góðum stundum. Good times were had by all. Eina sem vantaði uppá dagskrá hátíðarinnar var að sjálfsögðu upptroðningur að hætti the fabulous four, og kannski kvenmann upp á lausa arminn en þetta var stórgóð helgi. Sérstakt shout out fær útlenska kellingin í sundlauginni fyrir góðar móttökur. shalom...


posted at 10:53 AM
Tuesday, August 08, 2006

Já fyrir þá sem hafa ekki séð mig lengi þá er kallinn svona líka tónaður! Aðrir mega éta skít. Nú stefnir í heilsuátak hjá mér. Mataræði verður eins og hjá fólki sem er með gott mataræði og tekið skal á æfingum þar til blóðið rennur og svo framvegis. Good times...


posted at 11:49 AM