<!-- --><!-- --><style type="text/css">@import url(http://www.blogger.com/static/v1/v-css/navbar/697174003-classic.css); div.b-mobile {display:none;} </style> </head><body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=11312049&amp;blogName=It+is+what+it+is...&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLACK&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2Fsearch&amp;blogLocale=en_US&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2F" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>













Í prófíl er skófíl sem aldrei fyrr. Holla!
En hann heitir Jóel.


Picture:
threadless
Coder:
baby.pooh
Coder Blog:
here

Tuesday, October 31, 2006
Gaman frá því að segja að mér var boðið í innanhúsbolta með úrvalsdeildarleikmönnum í gær. Meira segja leikmanni ársins og læti þó Danbró hafi reyndar verið asnalega bestur þarna. Ég var að sjálfsögðu pulsan á svæðinu en rosalega hafði ég gaman af! Ég setti meira segja eitt eða tvö þrátt fyrir meiðsli þreytu og almennt litla getu. Ég held ég hafi tekið gömlu skónna hans Daníels í misgripum fyrir gömlu skónna hans Hemma Gunn. Ég byrjaði tímann á að snúa ökklann. Soddann er det.
Nú var ég að kaupa þriggja mánaða kort áðan í World Class laugum. Ég og Daníel munum lyfta þar eins og óðir menn; öskrandi og sláandi hvern annann utan undir. Good times maður. Good times. Nú er maður hættur að reykja og er að fara í gang aftur í boxinu. Svo bætir maður lyftingum við! Ha! Þetta verður flott.
Annars er fátt að frétta. Helst þetta: Bílaplanið í vinnunni í dag minnti mig á brauðsneið með litlu smjöri. Skammdegið er ömurlegt, Dísin er awesome. Takk fyrir í dag. Jóel út...


posted at 9:57 AM
Wednesday, October 25, 2006
Síðasta blogfærslan mín fór víst eitthvað fyrir brjóstið á bróður mínum í bleiku buxunum en það verður bara að vera hans mál. Ég get ekki verið að eltast við duttlunga slíkra manna. HA! jájá...


posted at 12:20 PM
Monday, October 23, 2006
Margt til íessu. Ég skal ekki segja. Á mér að finnast eitthvað um það þegar ég heyri að gömul kærasta mín er að boinka einhvern mofo félaga gaurs sem ég vinn með. Mér finnst einhvern veginn liggja beinast við að finnast það leiðinlegt eins og ég eigi einhvað í henni ennþá en mér er bara aaale drullu sama. Kannski af því að ég er með totally awesome kærustu. Mér myndi sennilega finnast eitthvað ef hún væri að boinka einhvern mofo.
Nú er lífið gott að flestu leiti. Betra en það hefur verið í mörg ár og ég fer ósjálfrátt að velta fyrir mér hvort það sé bara tímabil og svo verður allt crappy aftur. Og svo gott aftur og svo crappy aftur... Ég held samt ekki. Ég held ég sé bara að fullorðnast ágætlega.


The first step to getting the things you want out of life is this: Decide what you want.
Ben Stein


posted at 1:14 PM
Wednesday, October 18, 2006
Nú er nikótín þörfin orðin býsna erfið og spurning um að hætta þessu rugli. Maður heldur alltaf að maður sé ósigrandi þangað til annað kemur í ljós. Það er ekkert leiðinlegra en að vera háður sígarettum. Ég hef kynnst því áður og ætla mér ekki að lenda þar aftur. Þetta er samt bara fyrsta kvöldið mitt. Svo þegar ég byrja að æfa aftur þá hjálpar það líka. Endorfín er voða gott gegn svona skít. Gangi mér vel...


posted at 1:33 PM
Friday, October 13, 2006


posted at 12:33 PM
Thursday, October 12, 2006
Nú er ég búinn að vera heima í fjóra daga! Halló! Sjúkari en Arafat! Í fyrramálið fær ekkert mig til að fara ekki í vinnuna. Come hell or hot water eins og fíflið sagði.
Ég og Arafat erum samt alveg vinir. Við hittumst reglulega hjá Þórhalli miðil. Hann lét mig meira að segja vita að ég var búinn að tína kopp af bílnum. Já hann er góður drengur hann Yesser. Bara misskilinn. Fólk eins og Símon bróðir skilja þetta bara ekki.
Anyway... Gangi mér vel að komast aftur í gang. Laters


posted at 9:12 AM
Tuesday, October 10, 2006


"God hates fags" söng bollan og meinti það. Hver er ég til að vera ósammála einhverju sem ég sé í sjónvarpinu?
Jú kannski. Kannski soldið mikið.
Kjallinn er orðinn ansi veikur. Ég gruna stelpuna sem afgreiddi mig í bónus um daginn um að smita mig. Viljandi. Hún var stuttklippt. Stuttklipptir kvenmenn eru varasamir. Munið það börnin góð ef þið sjáið snoðaðan kvenmann að spyrja hvort hún hafi fengið lús eða krabba af því að það eru einu gildu afsakanirnar fyrir slíkri hegðun. Stormsker hefur talað.


posted at 2:22 PM
Sunday, October 08, 2006
Já veðrið er gott, boltinn var góður, kókið er gott, myndin er góð og kjallinn er ánægður. Lífið er ofboðslega einfalt þessa dagana eins og vill verða þegar maður er í góðu jafnvægi. Ég gæti staðið mig betur í boxinu og fjármálum og þetta verður tæklað núna á komandi vikum. Eins og Símon bróðir segir þá "brosir enginn öllum stundum nema dauður sé". Ég er samt bara spakur milli brosa núna. Skeifan að gleymast bara á löngum köflum. Maður má ekki gleyma að þakka Guði fyrir allt. Það er lágmark þegar manni er gefið eitthvað að þakka fyrir. Good times.

Veriði góð...


posted at 12:48 PM