Jóel Hjalta
Jóel (vinstri), ásamt hefta bróður sínum, Danna.
Hver er annars Jóel?...Jóel er...
Á príma aldri
Vinnur á póstinum og er á leið í skóla
Á eitt barn
Nei...á ekkert barn...hehe
Jóel Fílar
Snædísi...(í botn.)
Liverpool, Real Madrid, Val og Leikni.
Allar týpur af tónlist með sál.
Snædísi...(í botn.)
Tuesday, July 24, 2007

Got my studio up! Nice right? Shiiit...
posted at 3:04 AM
Wednesday, July 11, 2007

Já maður spyr sig. Hvað er raunveruleiki? Við vitum að hann er mismunandi eftir því hver er að skynja hann. Aðeins Guð sér allt eins og það er. Hans skynjun getur ekki málast af neinni reynslu eða persónuleika því að hann er fullkominn og veit og skilur allt.
En ef raunveruleikinn er bara það sem okkur sýnist hann vera, getum við þá ekki haft einhver áhrif á hann? Séð það sem við viljum sjá?
Nú er ég ekki að tala um að ég geti breytt tunglinu í ost eða eitthvað þesslegt. Í praktík er ég sennilega að tala um hliðarnar tvær á lífinu, jákvæðni og neikvæðni. Sumir sjá bara góðu hliðina á öllu og eru jákvæðir. Aðrir sjá erfiðleika og hindranir og leiðindi og draga í raun sjálfan sig niður. Enn aðrir vilja blanda því saman og halda að það sé hinn æðsti raunveruleiki og svo framvegis.
Ég er þeirrar skoðunar að líf mitt og umhverfi stjórnist af mínu hugarfari og mig langar að breyta því. Létta það svolítið. Pínu.
Hvað segið þið kæru lesendur? Make sense?
posted at 7:42 AM
Friday, July 06, 2007

posted at 8:48 AM
Monday, July 02, 2007

Já tjallinn er ansi veikur núna. Kominn með lungabólgu og er að toppa í 39,5 stiga líkamshita. Shiiit. Ég fer létt með það. Læknirinn sagði mér að sýna þessu virðingu og liggja í viku og ég mun að sjálfsögðu hlýða fyrir utan að ég mæti nottla í brullup bróður míns og spúsu hans. Sprækur sem lækur. L8r.
posted at 11:31 AM