Friday, September 21, 2007

Ola bitcheees....Það er moving day maður!!! Ég er að klára að pakka núna, svo bara n-vík here i come bitcheees! Ég ætla að nota tækifærið með alþjóð lesandi þessi orð mín og vara fólk við lestri á Lifandi Vísindi og sögublaðinu sem þeir eru að gefa út núna. Sjálfur hef ég mjög gaman af þessum blöðum en þegar umfjöllun er um eitthvað sem tengist kristindómnum þá fara þeir illa með staðreyndir og fullyrða hluti sem eru einfaldlega hugarburður trúleysingja og eru langt frá því að vera sannir. Gott dæmi er þegar þeir voru með grein um hvers vegna kristindómurinn breiddist út á þessum ógnarhraða sem hann gerði eftir að Jesús reis upp og mennirnir skýrðust í heilögum anda. Það var góð markaðsetning! Já góð markaðsetning gerði Jesú að Kristi sagði fyrirsögnin! Shiiit. Nú er svolítið langt síðan ég las þetta en mig minnir að þeir hafo líka fullyrt í sömu grein að lærisveinarnir hafi stolið líki Jesú og búið þetta til.
Nýlegra dæmi er í sögublaðinu. Þar var grein um djöfulinn í gegnum söguna eða eitthvað slíkt. Ég stóð bara á Esso og beið í röð þannig að ég gluggaði bara aðeins í greinina en þar rak ég augun í þetta að djöfullinn var fyrst á himnum en Guð hafi rekið hann og félaga hans út þegar hann hafði ekki lengur not fyrir hann!!! Hvað er gerast hérna?! Það vita allir sem hafa fræðst eitthvað um frásögn biblíunnar á þessu að kvikindið gerði uppreisn, vildi vera Guði æðri og var þess vegna rekin úr himnaríki! Jeminn sko... Þeir koma fram sem fræðimenn sem fylla blaðið af áreiðanlegum og sönnuðum fróðleik og svo nota þeir það sem áróðurstól með svona bulli!
Já ég var svona nett hneykslaður og ákvað að tjá mig á veraldarvefnum þar sem allir fylgjast með Jóeli.
Je.
Meira síðar.
Bitcheeees...
posted at 7:00 AM
Tuesday, September 18, 2007
Suuuuup?
Drekinn er kominn heim frá DK. Fór til köben að dilla mér ásamt spúsu minni. Good times. Við fórum í dýragarðinn og sáum ljón, fíla, ísbirni, leðurblökur, nashyrninga og gíraffa og ég veit ekki hvað eigum við að ræða þetta eitthvað? Sæll. Alger snilld að sjá þessi dýr. Maður áttar sig ekki á því en þau eru nánast mythical þegar maður sér þetta bara í sjónvarpinu og af afspurn og ég fékk nett sjokk að vera bara allt í einu að horfa á ísbjörn! Rosalega var það gaman!
Menn og konur hafa eitthvað verið að skjóta á mig vegna blogg-tíðni minnar. Það má vera að það hafi einhvern rétt á sér en hér er ég allavega kominn! Sæl verið þið! Gaman að sjá ykkur ekki! Nóg í bili. Ég lofa að það verður ekki einn og hálfur mánuður áður en ég blogga aftur.

posted at 4:56 AM
Jóel Hjalta
Jóel (vinstri), ásamt hefta bróður sínum, Danna.
Hver er annars Jóel?...Jóel er...
Á príma aldri
Vinnur á póstinum og er á leið í skóla
Á eitt barn
Nei...á ekkert barn...hehe
Jóel Fílar
Snædísi...(í botn.)
Liverpool, Real Madrid, Val og Leikni.
Allar týpur af tónlist með sál.