<!-- --><!-- --><style type="text/css">@import url(http://www.blogger.com/static/v1/v-css/navbar/697174003-classic.css); div.b-mobile {display:none;} </style> </head><body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=11312049&amp;blogName=It+is+what+it+is...&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLACK&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2Fsearch&amp;blogLocale=en_US&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2F" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>













Í prófíl er skófíl sem aldrei fyrr. Holla!
En hann heitir Jóel.


Picture:
threadless
Coder:
baby.pooh
Coder Blog:
here

Monday, March 31, 2008
Ég var að skoða allt gamla bloggið mitt og mér fannst tvennt standa uppúr. Annað er quote sem ég ætla að skella hér inná en hitt verður að koma seinna af því að það passar ekki við quotið.

Do not pray for easy lives. Pray to be stronger men. Do not pray for tasks equal to your powers. Pray for powers equal to your tasks. Then the doing of your work shall be no miracle, but you shall be the miracle. Phillips Brooks (1835 - 1893)

Rosalegt quote!! jóel út....í bili...


posted at 5:00 PM


posted at 4:57 PM
Jebb, ég fékk 8 í náttúrufræði. Þetta slapp fyrir horn hjá mér. Þetta er bara ekki slæmar einkunnir miðað við vinnuna sem ég lagði í þetta. Nú set ég mér markmið fyrir næstu lotu; að læra meira. Maður hlýtur að stefna alltaf á tíurnar. Til hvers er maður annars að þessu?

Shalom


posted at 4:08 PM
Einkunnir komnar í hús í forritun og íslensku. Lokaeinkunn 8 í íslensku 203 og 10 í forritun. Náttúrufræði er eftir og ég bara vona svakalega að ég nái áttu þar. Þá er ég nokkuð góður í þessari lotu.


posted at 8:04 AM
Friday, March 28, 2008
Lotan búin!!! Síðasta prófið var í morgun. Ég gerði svosem engin undur og stórmerki en ég er allavega ekki fallinn og það þýðir að ég er í fríi í viku núna.Einkunnir koma eftir helgi. Kannski maður tilkynni þær hérna á alnetinu bara.

í bili......shalom.


posted at 11:33 AM
Sunday, March 09, 2008
Finnst þér ekki óþægilegt að borða þegar þú þarft að kúka?


posted at 4:56 AM
Wednesday, March 05, 2008
Ég var á samkomu áðan. Dat was hot yo!!(fyrir Símon). Þetta var yndisleg stund. Alger unaður jafnvel(fyrir pabba). Ég er bara smátt og smátt að átta mig á þessu með nærveru Guðs. Ég hef svo lengi beðið eftir því að Guð umbreyti mér í einni sveiflu. Vissulega gerast kraftaverkin en þetta sem ég er að tala um virkar samt ekki þannig. Það sem ég er að átta mig á er að allt sem ég þarf er í nærveru Guðs. Öll mín andlega og líkamlega næring og lækning er í nærveru Guðs. Guð er svo kraftmikill að að vera nálægt honum einfaldlega gefur allt sem maður þarf! Eina sem ég þarf að gera er að sækjast eftir nærveru hans og hana finn ég aldrei eins sterka og í lofgjörð. Ekki endilega bara á samkomu, ég get lofað Guð í bílnum eða í hjartanu án þess að syngja en það er eitthvað við það þegar margir koma saman til að lofa Guð þá er nærveran bara extra mikil. Þess vegna vonast ég til að komast sem mest á samkomur í kirkjunni minni(skráði mig áðan alright!), og hrærast í þessu. Nice.


posted at 3:21 PM
Sunday, March 02, 2008
Já komið þið sæl krakkar mínir. Ef einhver skyldi ennþá vera að kíkja á þessa blessuðu síðu mína þá ætla ég núna að reyna að rifja upp fréttir og blogga aftur í tímann.
Sem ég sit hér og horfi á Harry Potter dettur mér fyrst í hug að ég fékk viðurkenningu frá skólanum fyrir námsárangur. Við erum 170 nemendur í skólanum og ég er svona ca. tólfti hæsti í skólanum með meðaleinkunnina 8,33. Það er baralltílæ. Ég var líka hæstur í bekknum í 2 af 3 fögum í síðustu lotu. Nice.....
Við Snædís erum flutt aftur á Hótel Mamma. Við fengum leigendur í ár hið minnsta og fluttum allt einhverjum þrem dögum seinna. SWEET að vera kominn aftur í bæinn! Þá kannski hittir maður BRÆÐUR SÍNA OFTAR! Djís mar.
Ég er nánast búinn að ákveða að fara í hugbúnaðarverkfræði þegar ég er búinn með Hraðbraut. Ég er í forritun núna og er að fíla mig vel! Wicked awesome! Ég er að spá í að búa til eigin síðu til að setja á netið í staðin fyrir þessa. Bara með því sem ég hef lært í forritun. Það væri awesome. Bíðið spennt.
Svo er ég farinn að mæta á samkomur í Mósaík. Það eru engin smá áhrif sem slíkt hefur á allt líf manns. Guð er ekki andlit í skýjunum. Hann er á staðnum. Present and powerful. Samkomur geta haft meiri áhrif en maður heldur ef maður fer með rétt hugarfar.
Ég er að gleyma alls kyns fréttum en við skulum ekki hafa þetta lengra í bili.

Thanx for tuning in....

More coming soon....


posted at 2:11 PM