<!-- --><!-- --><style type="text/css">@import url(http://www.blogger.com/static/v1/v-css/navbar/697174003-classic.css); div.b-mobile {display:none;} </style> </head><body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=11312049&amp;blogName=It+is+what+it+is...&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLACK&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2Fsearch&amp;blogLocale=en_US&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2F" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>













Í prófíl er skófíl sem aldrei fyrr. Holla!
En hann heitir Jóel.


Picture:
threadless
Coder:
baby.pooh
Coder Blog:
here

Monday, April 28, 2008

Strákur í skólanum mínum fór mikinn í dag að tala um hversu mikil fífl þetta voru sem lögerglan barði á uppí Norðlingaholti í mótmælunum um daginn. Að löggan hafi verið svo kurteis að vara þau ítrekað við að ef þau færu ekki þá yrðu þau gösuð og hvaðeina.
Þetta finnst mér alveg óskiljanleg afstaða að taka. Að standa með þeim sem eru að traðka á rétti hans sjálfs. Fólkið þarna hefur allan rétt á að standa hvar sem er, enda er þetta frjálst land. Þessi gaur vildi meina að ef það kemur visst mikill æsingur í lið sem er að mótmæla þá eigi löggimann að dreifa þeim, þau séu að brjóta lög. Eins og löggimann mæti bara með einhvern æsingsmælir og taki í taumana þegar á við. Mótmæli eru bara lögleg hér á landi. Ég sá upptökurnar. Menn voru dregnir út úr hópnum án þess að hafa ógnað lögreglu neitt og þeir sem stóðu þeim næst voru barðir frá. Ég get ekki gúdderað þetta. Ég vill geta mætt á mótmæli, alveg sama hversu æstur ég er, án þess að eiga í hættu að vera gasaður og laminn af löggunni fyrir að mótmæla. Rugl...


posted at 11:20 AM
Monday, April 14, 2008

Ég var að horfa á zeitgeist áðan. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta heimildamynd um ráðandi öflin í heiminum. Hún fer um víðan völl en hún m.a. ádeila á kristna trú.
Hann sýnir fram á gríðarlega margar hliðstæður í kristni og stjörnufræði og vill túlka það sem að kristin trú sé ekkert annað en túlkun á henni. Mér fannst alveg ótrúlegt að sjá allar þessar hliðstæður en það eina sem ég hugsa er; vá hvað þetta er allt margslungin sköpun hjá Guði þessi alheimur. Guð nottla vissi allt sem átti eftir að gerast eftir að hann skapaði heiminn og það sést á sköpuninni í þessari stjörnufræði. Forvitnir verða bara að kíkja á myndina.
Gaurinn vill meina að Guð sé tilbúningur og allt það en það er nottla löngu orðið of seint að ætla að selja mér þá hugmynd þar sem ég hef hitt hann sjálfur. Hann hefur talað inní anda minn eins skýrt og greinilega og nokkuð sem ég hef heyrt með eyrunum. Hann hefur breytt lífi mínu og gert kraftaverk í mér og í kringum mig. Hver ætlar að segja mér að hann sé ekki til?! Blesíblesí mar gleymdu því....


posted at 11:59 AM
Saturday, April 12, 2008


Það er laugardagur maður ég er að fara í fótbolta!! Hápunktur vikunnar, eða einn af tveimur kannski. Þegar ég kemst í Mozaik þá er það hápunkturinn en boltinn er alveg ómissandi. Ég stefni á að verða eins og pabbi; í boltanum alla ævi. Good times...


posted at 4:24 AM
Friday, April 11, 2008

Ég er í dönskutíma að hlusta á 2pac og blogga. Higher learning maður!!


posted at 6:34 AM
Thursday, April 03, 2008
Jæja seinni færslan sem mér fannst standa upp úr er á myndformi og engra orða er þörf, myndin talar sínu máli.



posted at 3:13 AM