<!-- --><!-- --><style type="text/css">@import url(http://www.blogger.com/static/v1/v-css/navbar/697174003-classic.css); div.b-mobile {display:none;} </style> </head><body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=11312049&amp;blogName=It+is+what+it+is...&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLACK&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2Fsearch&amp;blogLocale=en_US&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2F" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>













Í prófíl er skófíl sem aldrei fyrr. Holla!
En hann heitir Jóel.


Picture:
threadless
Coder:
baby.pooh
Coder Blog:
here

Friday, May 30, 2008
Ég verð að skella inn einu enn aukalagi áður en gríðarspenntir Daníelar fá að sjá fyrsta sætið. Jay-Z með lagið "Can´t knock the hustle".



posted at 8:37 AM
Wednesday, May 28, 2008
Þá er komið að öðru sætinu. Ég held að þeir hafi bara ekki gert neitt video við þetta lag þannig að við sýnum bara lagið með mynd af þeim. Þetta eru snillarnir Pétur Steinn og Sé ell lipur, með lagið "In the house" alright....




posted at 7:09 AM
Tuesday, May 27, 2008
Þetta er nottla að verða hálfgerður top 10 listi hjá mér. Það eru bara nokkur lög og artistar sem einfaldlega verða að vera með. Þetta lag komst ekki á listann minn en þetta fær að fljóta með núna. Algjör klassík. Bræðurnir eru pottþétt báðir sammála mér. Redman & Method Man með lagið "How High".



posted at 3:43 PM
Dadadadadadadadadadada!!!!! Þriðja sætið! Þar situr nánast óþekktur plebbi. Ég veit ekki hvað mamma hans kallar hann en hann segist heita Jamal. Þetta er eina lagið sem ég hef hlustað á með honum en þetta er þriðja besta lag sögunnar samkvæmt þessum lista allavega. Keep it real, gjörsovel...



posted at 6:02 AM
Monday, May 26, 2008
Jæja! Fjórða sætið! Vafalaust greatest MC of all time gerir hér lítið lag fyrir mömmu sína. Kjappin heitir að sjálfsögðu 2pac og lagið er "Dear Mama".



posted at 4:21 AM
Friday, May 23, 2008
Næsta lag sem ég set hérna inn kemst ekki á top 5 listann, en artistinn er bara í svo miklu uppáhaldi hjá mér, þó hann hafi ekki komið lagi á listann, að ég verð að skella inn á milli einu lagi með honum. Fyrir valinu varð gamalt joint - resurrection. Kappinn heitir Common. Take it away...



posted at 10:45 AM
Thursday, May 22, 2008
Fimmta sætið. Ég tek svolítið með í reikninginn hversu vel lögin eru að endast og þess vegna eru þetta ekki þessi týpísku "classic" lög sem flestir kannski búast við. Ég vel lög sem ég er ennþá að hlusta á eftir mörg ár. Mér finnst þau bara hafa unnið fyrir þessum heiðri frekar en eitthvað sem ég nenni ekkert að hlusta á núna.

Í fimmta sæti situr "Shadowboxing" með GZA og Method Man. Alveg gullin RZA snilld þarna á ferð og það er bara eitthvað í þessu sem ég kem ekki fingri á....Bara snilld.

Enjoy



posted at 11:36 AM
Wednesday, May 21, 2008
Nú er komið að mínum fyrsta top 5 lista hér á þessari síðu. Ég ætla að finna video við mín all time favorite hip-hop lög og skella hérna inn. Það er nottla alltaf svolítið erfitt að raða svona í röð og svo er maður alltaf að gleyma einhverju en stemningin er samt meiri. Þannig að.....bráðlega kemur númer fimm á my all time hip-hop list! alright!



posted at 8:17 AM
Monday, May 19, 2008
Ég fór í fótbolta á laugardagsmorguninn síðasta. Þessi fótbolti var ósköp venjulegur nema hvað það var kannski heldur daufara yfir mönnum en venjulega, en ég var alltof pirraður til að hafa gaman af þessu. Ég bloggaði nýlega um hvað ég hef verið pirraður undanfarið og þetta tengist því nottla, en þetta er alltaf svolítið sérstakt hvernig ég er í boltanum.

Ég elska að spila fótbolta alveg fáranlega mikið en þegar ég er að því þá stekkur mér varla bros. Ég fer bara í einhvern ham og hleyp eins og ég eigi lífið að leysa og verð vondur ef það gengur ekki allt upp. Þá geta fúkyrði farið að heyrast og ég fer að meiða fólk án þess að virða það síðan viðlits, hvað þá að segja sorrí eða eitthvað.

Þetta er nú misslæmt, en þetta er mjög óheppilegt og ég ætla að hætta þessu hér með. Næsta laugardag mun ég mæta hress og skemmtilegur. Gott ef ég bið ekki bara aðeins á leiðinni þangað. Fæ Guð með mér í boltann.

Þá mæti ég í staðinn fyrir vin minn hérna fyrir neðan.




posted at 10:15 AM
Saturday, May 17, 2008
Massive þakkir til Daníels brósa fyrir nýja lúkkið! Shit is hot!



posted at 4:51 AM
Friday, May 16, 2008
Kjappinn er orðinn alltof pirraður. Ég veit ekki alveg af hverju ég er orðinn pirraðasti maður sem ég þekki en ég ætla að slaka á tauginni. Í 99.99999% tilfella þá er ekkert merkilegt að gerast. Það getur oft verið einhver líkamleg orsök fyrir svona hlutum en ég það er samt svo lítill hluti af ástæðunni. Ég hef fulla trú á því að ég geti vanið mig af þessu bara. Ekkert rugl. Manni líður að sjálfsögðu mikið betur ef maður er bara spakur og fólkið í kringum mig fagnar þessu eflaust líka hehe.


"Speak when you are angry--and you will make the best speech you'll ever regret."
Laurence J. Peter (1919 - 1988)


posted at 8:06 AM
Tuesday, May 13, 2008
Kjallinn er kominn í átak! Einhvers staðar las ég að það væri sniðugt að skrifa um árangurinn á netið, að það myndi hvetja mann til að standa sig betur þannig að ég er búinn að opna aðra bloggsíðu þar sem ég mun blogga daglega um hvernig mér gekk þann daginn. Þetta er kannski ekkert mest spennandi lesningin en þetta hjálpar mér þannig að þeir bara lesa sem vilja. Ég set link hérna einhverstaðar á síðuna en hérna er hann í bili. http://www.joeliform.blogspot.com/




posted at 4:14 AM
Sunday, May 11, 2008
Já tölurnar eru komnar í hús... Lokaeinkunn 8 í Dönsku 203, Þýsku 203 og Stærðfræði 303. Ég hefði viljað fá eitthvað aðeins betra en miðað við hvað þetta var erfið lota þá er þetta fín lending. Það var mikið vinnuálag og mér tókst mjög illa að mótivera mig og lærði þar af leiðandi ekki nógu vel. En hey...þetta slapp og gengur betur næst. Áttan er ekkert slæm.



posted at 9:54 AM
Friday, May 09, 2008
Síðasta prófið búið!! Ég er búinn að tryggja mér 8 í dönsku en aðrar einkunnir eiga eftir að koma í hús. Ég er ekki jafn bjartsýnn með þýskuna. Prófið þar gekk ekki neitt blússand æðislega - kemur í ljós!



posted at 7:21 AM