<!-- --><!-- --><style type="text/css">@import url(http://www.blogger.com/static/v1/v-css/navbar/697174003-classic.css); div.b-mobile {display:none;} </style> </head><body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=11312049&amp;blogName=It+is+what+it+is...&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLACK&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2Fsearch&amp;blogLocale=en_US&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fjoelhjalta.blogspot.com%2F" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>













Í prófíl er skófíl sem aldrei fyrr. Holla!
En hann heitir Jóel.


Picture:
threadless
Coder:
baby.pooh
Coder Blog:
here

Monday, June 30, 2008
Elska svona vel heppnað slapstick comedy. Ekkert fyndið í myndum en þegar þetta gerist í alvöru þá er ekkert fyndnara. Óþarfi að horfa á allt myndbandið. Þetta gerist strax í byrjun.



posted at 6:57 AM
Sunday, June 29, 2008


Alriiight!!! Spánverjar eru evrópumeistarar eins og kjappinn var búinn að spá fyrir. Ekki skemmdi heldur fyrir að El nínjó skyldi klára þetta fyrir þá. Ekki skemmdi heldur fyrir að sjá þjóðverjana sitja eftir með sárt ennið. Þeir áttu ekkert skilið fyrir leik sinn og eiga bara ekkert gott skilið sem manneskjur(djók). En til hamingju spánverjar nær og fjær. Alriiiight!!!!!


posted at 4:56 PM
Monday, June 23, 2008
Jæja góðir hálsar, the numbers are in. Ég fékk níu í félagsfræði og ensku og SJÖ í íslensku. Fyrsta sjöan mín síðan bara í byrjun skólans. Ég nenni samt ekki að svekkja mig eitthvað á því. Íslenska er hrikalegt fag. Alveg hrikalegt. Ég er bara í skýjunum með að vera kominn í sumarfrí. O yeah!

Í form fyrir Tenerife átakið mitt feilaði algjörlega. Ég er bara feitari ef eitthvað er. En það er allt í lagi líka. Ég hef afsökun. Veikindi. Ég hef ekkert getað æft núna í margar vikur. Svo þegar ég kem aftur held ég bara áfram að reyna. Maður hættir aldrei að reyna. Þá hlýtur þetta að nást á endanum. Það vantar ekki nema rétt herslumuninn á þetta.

Anyway, útí veðrið með mig. Og ykkur. Later.



posted at 5:04 AM
Friday, June 20, 2008
Klikkið á myndina!



posted at 4:11 AM
Friday, June 06, 2008
Soldið fyndið quote hérna.

“God will prepare everything for our perfect happiness in heaven, and if it takes my dog being there, I believe he'll be there”

-Billy Graham


posted at 9:17 AM
Ákvað að skella þessu hérna inn. Taka af allann vafa hverjir eru bestir í Evrópu. Þetta eru bara opinberar tölur UEFA yfir síðustu fimm ár. Liverpool eru BESTIR! MUHAHAHAHAHAHAHA!!!!



posted at 7:50 AM
Check it out! Þetta er atriði úr annars slappri mynd með J-Lo, sem ég gleymi seint. Mig langaði fyrst að læra á blásturhljóðfæri þegar ég sá þetta. Alveg magnað. Þetta byrjar á einhverju rugli - þau að dansa. Bíðiði eftir að hann skelli sér upp á svið. Hann er sko minnislaus og vissi ekki að hann kynni á hljóðfæri. Ótrúlega smooth sound í þessu. Check it out....



posted at 7:12 AM
Thursday, June 05, 2008


Ég er að fara í próf í Egilssögu á morgun. Endemis leiðindi! Ég er að komast að því meir og meir að ég er sáralítið inní íslenskri menningu. Mér leiðist næstum öll íslensk tónlist, íslenskar bíómyndir, íslenskar bókmenntir(þó þær séu kannski skárstar í þessari upptalningu), íslensk ljóðamenning og meira að segja íslensk matargerð(svið og þetta rugl). Ég hef bara alist upp á amerískri menningu án þess að spá neitt í því hvað var að gerast hérna heima. Íslenska er erfiðasta fag sem ég hef verið í í skólanum af því að mér leiðist svo allt sem er kennt að ég get varla lært. Er einhver eins og ég að lesa þetta? Eða er ég bara í ruglinu?


posted at 9:06 AM
Wednesday, June 04, 2008
Ég er í félagsfræði núna, að lesa um mismunandi samfélagstegundir og rosalega væri ég til að vera bara í svona veiðisamfélagi. Eins og í apocalypto. Það væri sweet af því að ég gæti ekki átt neitt. Ég væri bara besti veiðimaðurinn og allt væri sweet. Mér finnst eignir vera svo mikil byrði. Mér finnst hagkerfi vera byrði. Að þurfa að eiga pening og dót og drasl. Best væri að lifa bara af landinu og chilla bara. Alveg magnað.




posted at 4:00 AM
Monday, June 02, 2008
Jæja!!! Fyrsta sætið. Alveg klassískt lag frá meistara 2pac. My Block.




posted at 5:45 AM